20# Minnka hrukkur með Photoshopkremi
Þegar þú ert að vinna með hrukkur þá viltu ekki taka allar hrukkurnar af viðkomandi og oftast eru hrukkur einmitt það sem við viljum sjá, því að það eru jú persónueinkenni, en þær geta verið misdjúpar og tekið þess vegna á sig misstóra skugga við ljós frá myndavélinni sem ýkir svo aftur hrukkurnar. Það viljum frekar reyna að laga, þannig að fólk verði ekki með meiri hrukkur en það er nú þegar með – það er EKKI vinsælt ! Við gerum það svona. Veldu tóman layer sem er beint fyrir ofan þann layer sem innheldur myndina af manneskjunni, byrjaðu að nota Healing Brush á hrukkurnar, passaðu bara í stillingar-stikunni efst að þar standi “All Layers”, svo máttu alveg ganga soldið langt með þetta þ.e.a.s taka hrukkurnar nánast alveg í burtu því að í næsta skrefi þegar við erum búin að taka hrukkurnar algjörlega í burtu ( og gera þar með viðkomandi dúkku/gínu-legan) þá minnkarðu Opacity í nýja layernum sem innheldur hrukkulagfæringarnar allar, niður í ca.70% og þá fær viðkomandi allar hrukkurnar sínar aftur.. nema þær verða ekki eins djúpar.

19# Að taka í burtu einstök hár.
Það getur oft verið erfitt að taka í burtu einstök hár sem standa upp í loftið og/eða eru nálægt öðru efni sem má ekki að taka. Ef þú notar Healing brush þá verða áhrifin oft klessukennd, þá er betra að Clone-stamp í verkið. Veldu þér stærð á Clone Stamp sem er aðeins stærri en hárið sjálft, Þú getur svo hægrismellt til að fá stillingu fyrir clone-stamp og valið hardness í ca.70% / oft er gott að vinna með pixla í 70-80% á clone stamp þar sem 100% er of mikið, en þetta er þó engin regla. ALT smelltu núna á svæði sem þú vilt ná í til að setja yfir hárið og byrjaðu svo að smella hárið sjálft.
18# Auka contrast í augunum – einföld aðferð.
Það eru til margar leiðir til að skerpa á augnsvip á myndum í Photoshop. Í portrait myndum þá skipta augun mestu máli og þegar við skoðum potrait myndir þá fara sjálfkrafa augu okkar að reyna tengjast viðkomandi með því að horfa í augun. Tengsla-fókus-punkturinn er þar.
Tvöfaldaðu Bakground layer – Slaufa+J (PC:CTRL+J) breyttu Blend Mode í Soft Light, núna verður öll myndin með meiri contrast, (þetta er auðvitað hægt að nota á annað líka t.d hár, húð, landslag ofl). Smelltu núna á maskann í layer-palletunni og hafðu hann svartan til að fela öll áhrif. Veldu hvítan lit í pensil og byrjaðu að mála inn áhrifin með mjúkum útlínum og lágu opacity, en og aftur getur þú lækkað opacity í layernum og líka penslinum til að fá inn mjúk áhrif inn á myndina.

17# Ég fer í ljós 3 sinnum í viku.
Það verða að vera svona Photoshop ráð líka með, sérstaklega af því maður notar þetta nokkuð oft á myndum. Stundum þarf bara að smella smá sumar-sólar-geislum á fólk, sérstaklega eftir svona erfiðan vetur. Við gerum það svona. Búðu til Solid color – adjustment layer, veldu appelsínu/brúnan lit í layer pallettunni og gerðu OK. Breyttu Layernum í Soft Ligh. Þegar þú ert búin að því og liturinn fer á væntanlega á alla myndina sem þú vilt ekki, bara þar sem húðin sést. Smelltu þá maska á layerinn og invertaðu honum – Slaufa+I (PC:CTRL+I), núna velurðu þér pensill (B) með hvítum lit í og “málar” brúnkuna hægt og rólega á húðina. Þú getur dregið úr áhrifum með því að minnka Opacity í penslinum OG í layernum sjálfum. Ég er vanur að hafa alltaf layerinn hjá mér stilltan í ca.70% opacity – ekki föst regla en gott að geta aukið eða minnkað – “tanið”
// Viðbót: Beiðni sem kom í tölvupóstinn oli@olinn.net – til að fara “ýkta” leið í taninu er best að fjölfalda bara solid color adjusment layerinn, Slaufa+J (PC:CTRL+J) og svo minnka eða auka opacity í þeim líka ![]()

16# Að auðvelda val/vinnslu á bakgrunn
Ef þú ert að vinna með erfiðan bakgrunn á mynd sem þarf að velja, afmarka og/eða vinna með þá er oft betra að sjá bakgrunninn með öðrum lit. Þegar þú hefur valið bakgrunninn og ert jafnvel búin að setja Mask-a á hann þá ferðu í Select – Refine Edge, þar geturðu valið mismunandi bakgrunnsliti fyrir maskan. Prufaðu – veldu B fyrir svartan, W fyrir hvítan og K fyrir svart-hvíta forskoðun. Það eru fleiri en þessir, fiktaðu, en ég nota þetta mest.
15# Leggja upp margar myndir í sama skjali, Layers og fá þær svo allar til að liggja eins.
Ef þú ert að taka/vinna með HDR eða jafnvel vinna myndir sem þarf að maska út part með aðra mynd undir, þá er nauðsynlegt að láta myndirnar Align-a saman. Þá gerirðu þetta – velur öll layerin, ferð svo í Edit – Auto-Align Layers og velur OK.
14# Tóna niður lita-/birtu-tón.. hvað er margir tónar í því ?
Þessa aðferð nota ég mikið. Ef þú vilt minnka hvítan, birtuna, eða tón á lit þá er þetta snilldar aðferð.
Farðu í Color Range, finnur í Select – Color Range, smelltu á t.d hvítan í myndinni eða einhvern lit sem þú vilt eiga við, veldu svo einhvern adjustment layer – t.d Curves eða Levels ( færð þá valið sjálfkrafa sem maska), og veldu svo í Blend mode annahvort Multiply eða til að fá sterkari áhrif Linear Burn. Til að minnka svo áhrifin þá minnkarðu bara Opacity á layernum sjálfum og .. Vola þú ert alveg með þetta
13# Fullt af filterum sem þú vissir ekki að þú værir með.
Langar þig til að prufa nýja filtera sem eru fljótvirkir en gefa jafnframt einstaka áferð á myndirnar þínar ? Ekki leita lengra - farðu á Pixelbender. Virkar reyndar bara fyrir PSC4 og PSC5.
12# Puppet Warp sem smart filter
Þú finnur Puppet warp undir edit í photoshop. Þú geturðu haft miklu meiri stjórn á puppet warp ef þú fyrst breytir layer-inu í smart object.
Á þann hátt verður puppet warp virkt sem smart filter – sem er hægt að laga, breyta og bæta eftir á.
Um puppet warp HÉR
11# Að búa til nýjan Layer – fyrir neðan viðkomandi layer.
Þegar þú býrð til nýjan Layer í photoshop þá kemur hann sjálfkrafa fyrir ofan þann layer sem þú ert með valinn í það skipti. En oft vill maður fá nýja layerinn fyrir neðan, auðvitað geturðu bara dregið hann niður þegar hann er kominn, en það er til snilldar “flýti-lausn” við þessu.
Þegar þú smellir á “New layer” merkið í layer panel – þá heldurðu inni Mac: Slaufu / Pc: Ctrl og þá birtist layerinn fyrir neðan þann sem var valinn í það skiptið. Nema að sjálfsögðu að þú sért mað valinn bakground layer ( sjálfgefið neðsti layer í nýju PS skjali) þá virkar þetta ekki því að það getur ekkert verið fyrir neðan Background layer – nema hann sé aflæstur – meira um það seinna.
10# Endurstilla Photoshop – aftur á byrjun.
Ef þú hefur áhuga (af einhverjum skringilegum ástæðum) að endurstilla Photoshop til sinna upprunalegu stillinga eða villt út með allar sérstillingar og fá forritið á byrjunarreit.
Þá gerirðu þetta – áður en þú ræsir photoshop þá heldurðu inni Pc: CTRL, ALT og SHIFT / Mac: Slaufa+ALT og SHIFT og þá birtist gluggi sem spyr þig hvort að þú viljir eyða út öllum sérstillingum í Photoshop. YES/NO
9#Opna margar myndir sem layers í einu og sama photoshop skjalinu.
Það getur oft verið hentugt að hlaða mörgum myndum í layers í sama skjalinu. En þetta er oft tímafrekt og soldið vesen ef þú ert með margar myndir. En það er sér skipun fyrir þetta í Photoshop.
Þú ferð í File – Scripts – Load files into stack. Og vola! myndirnar raðast sem layers í nýju Photoshop skjalinu. Undir file og script eru svo margar skipanir sem er alveg vert að skoða vel ef þú hefur ekki þegar gert það. Eins nota ég Bridge mikið (Photoshop – File -Browse in Bridge) og það er mjög þægilegt að velja myndirnar þar og fara svo í Tools – Photoshop – Load files into photoshop layers. Sama skipun og gerir það sama.
Eins eru þar (Bridge: Tools – Photoshop) eru margar snilldar skipanir sem er vert að skoða nánar sbr.”Merge to HDR pro“, “Lens correction” og “Image Processor”
8# Dodge og Burn / Lýsa eða dekkja
Í staðinn fyrir að vera alltaf skipta um dodge eða burn verkfærið í verkfæra stikunni sjálfri, haltu þá frekar ALT takkanum inni, þá skiptir Photoshop um andstæðuna sem er fyrir. Algjör snilld. Athuga: Þú sérð ekki icon/merkið skiptast í verkfærastikunni en virknin er til staðar.
Reyndar á það við um mörg verkfæri í Photoshop að ef þú heldur niðri ALT-takkanum þá færð andstæðu við þá virkni sem þú ert með sbr. stækkunarglerið dregur nær eða fjær ef þú heldur ALT-takkanum niðri og smellir.
7# Að opna Raw framhjá Camera Raw (ACR)
Ef þú ert með Raw fæl sem þú ert þegar búin að stilla og ert ánægð/ur með og þarft ekki að opna í ACR heldur opna beint í Photoshop – gerðu þá þetta – í Bridge haltu niðri “Shift” og tvísmelltu á myndina, þá opnar Photoshop Raw fælinn án þess að (ACR) komi nálægt því. Athuga: Ef þú ert með ACR sjálfkrafa stillt þannig að það eigi að opna Raw fæla sem SmartObject þá mun þetta shortcut/flýtiskipun yfirtaka þá skipun og myndin opnast bara sem venjuleg psd mynd í Photoshop.
5-6# Þitt persónulega Photoshop
Það er ótrúlega þægilegt að stilla Photoshop upp eftir því hvaða vinnuflæði hentar hverju sinni. Færðu til palletur, verkfæri, slökktu eða kveiktu á því sem hentar þér – farðu svo í Window – Workspace – New Workspace ( gefðu þessu vinnsusvæði nafn) og vistað. Núna getur þú alltaf náð í þessar stillingar í Photoshop þegar þú þarft á þeim á halda með því að fara í Window – Workspace – og velur nafnið á vinnusvæðinu og Photoshop endurraðar sér upp eftir því. En þetta er líka hægt að gera varðandi verkfærin sjálf í photoshop og getur auðveldað vinnuflæðið mikið – það eru fullt af verkfærum sem maður notar ekki í sér-vinnslu – þetta færðu í Adobe Configurator – snilldar sérforrit sem leyfir þér að sérsníða þínar verkfæra palletur í Photoshop. – kíktu á http://labs.adobe.com/technologies/configurator
A – Ferð í Window – Workspace – New workspace ( á eldri útgáfum stendur “save workspace”)

C – að kalla fram þetta vinnusvæði þegar þig vantar það. Sama leið Window – Workspace – (velur nafnið á vinnusvæðinu – geta verið mörg) – kennsla

4# Liquify svæði.
Þegar verið er að vinna með stór skjöl í photoshop þá getur liquify filter verið slatta lengi að vinna og étur upp vinnsluminnið hjá þér, ( ef þú hefur ekki notað þennan filter þá hefurðu ekki notað Photoshop
En til að komast aðeins framhjá þessari þungu vinnslu með þessum filter þá afmarkarðu bara svæðið fyrst sem þú ætlar að nota með val verkfærinu (Marquee tool) og þá opnast upp bara það svæði sem þú valdir og vinnslan verður hraðari
3# Oft er erfitt að finna alla bletti á myndum sbr. húðbletti, bólur, ryk sem hefur farið á sensor á myndavélinni o.þ.h – auk þess ef tölvuskjárinn er illa stilltur t.d yfir-/undirlýstur þá er þetta góð leið til að finna bletti. Búðu til Channel Mixer adjustment layer og breyttu myndinni í svart hvíta-high-kontrast mynd. Smelltu í “Monochrome” og færðu rauða sleðann alveg í -100, græna í +50 og bláa í +150. Mundu samt að þessi layer er bara fyrir preview, ekki gera neitt retouch á honum, eins þarf stundu aðeins að breyta gildum í adjustment til að fá þessa útkomu. Veldu svo tóman layer undir til að vinna allt retouch/lagfæringar. Smelltu þessu svo í action – sem er mjög þægilegt. /

2# Það eru sumar leturgerðir sem styðja ekki feitletrun, þá er þetta góð lausn, ljómaðu textann í Character panel flyout leiðarkerfinu ( svartur lítill þríhyrningur efst í hægra horni) velurðu “Faux Bold” – Vola
Mundu bara að slökkva á þessu þegar þú ert búin.
1# Það eru nokkrir hlutir sem virka EKKI á texta layer í photoshop t.d filters, nema þú gerir “rasterize” en þá geturðu ekki breytt honum frekar. Í staðinn þá convertar/breytirðu honum í “smart object”. Layers-Smart Objects-Convert to Smart object VOLA núna geturðu set á texta layer hvaða effect sem er t.d. filters og það eina sem þú þarft að gera er að tvísmella á smart object thum í layers pallettunni til að breyta textanum
)















